Á laugardaginn mættum liði KFF í
Boganum Akureyri í B-deildinni í deildarbikarnum. Fyrri
hálfleikur einkenndist af því að við vörðumst aftarlega á
vellinum og sóttum hratt þegar við unnum boltann. Það gekk mjög
vel og boltinn hélst vel innan liðsins og margar góðar sóknir
litu dagsins ljós þrátt fyrir að færin létu standa á sér. KFF
fengu sín færi og áttu meðal annars skot í slá og Óðinn var vel
vakandi í markinu og tók það sem á markið kom. Að mínu mati var
leikurinn í nokkru jafnvægi þó þeir væru meira með boltann þar
sem við bökkuðum og lokuðum á þá eftir fremsta megni. Markalaust
í fyrri hálfleik. Við hófum seinni hálfleikinn eins og þann
fyrri þ.e. vörðumst aftarlega og sóttum hratt þegar við unnum
boltann. Á 63. mínútu uppskárum við mark eftir skyndisókn er
Viddi fékk sendingu innfyrir og skoraði. Það sló þá nokkuð út af
laginu en virkaði sem vítamínsprauta fyrir okkur. Kenan skoraði
svo gott mark með skalla eftir hornspyrnu á 72. mínútu. Eftir
það þyngdu þeir sókn sína og áttu m.a.skot í slá. Á 82. mínútu
skoraði leikmaður KFF með skalla eftir aukaspyrnu á kantinum.
Aukaspyrnan fer frekar tæp þar sem Hilmar í 4.fl. vann leikmann
KFF á sprettinum og var augljóslega á undan og náði boltanum.
Dómarinn mat það sem svo að Hilmar hefði brotið af sér og upp úr
því skora þeir markið. Hvað um það, við vorum orðnir verulega
þreyttir og misstum hreinlega einbeitingu og það kostaði okkur
jöfnunarmarkið á 85. mínútu en það var í meira lagi ólöglegt er
leikmaður KFF skóflaði hreinlega boltanum með sér með hendinni
og skoraði gott mark. Þar við sat og lokatölur 2-2.
Við getum verið ánægðir með leikinn í
heild en ljóst að við þurfum að klára leikina betur en það er nógur
tími til að bæta þar um. Við vorum að spila fínan bolta og baráttan
var til staðar. KFF er sterkt lið en ég er ekki sammála grein
þeirri sem einhver úr þeirra herbúðum skrifar. Þar koma m.a. fram
eftirfarandi fullyrðingar.....
“
Enn og aftur yfirspilar KFF andstæðinga sína án þess að ná að klára
dæmið.”
“Svo fór samt að
pressan skilaði 2 – 2 jafntefli”
Við vörðumst aftarlega á vellinum og spiluðum agaðan
varnarleik og beittum skyndisóknum. Við spiluðum skynsamlega og
augljóslega voru þeir þá meira með boltann. En eitt er víst að við
vorum ekki yfirspilaðir í þessum leik en leikskipulag okkar var með
því móti að við buðum þeim að hafa boltann meira í leiknum en
spiluðum vel úr okkar spilum. Yfirspilaðir, nei, því er fjarri.
Héldu þeir pressu á okkur allan leikinn?? Var ég ekki að spila
þennan leik?
Lið okkar var þannig skipað að Óðinn var í markinu. Jói,
Kenan, Edin og Olgeir öftustu fjórir og Almír og Reynir þar fyrir
framan. Viddi á vinstri kantinum, Egill á hægri og Villi framarlega
á miðjunni. Daði var einn á toppnum.
Halli kom inn fyrir Jóa á 51 mín. og
Hilmar kom inn fyrir Villa á 75 mín.
Á fimmtudaginn mætum við Hetti í
lokaleik riðilsins á Fellavelli kl. 18.30.
Kv. Veddsinn (ekki yfirspilaður og
hana nú
J)